DVD og MiniDVD yfirfærsla
Bjargaðu dýrmætum minningum af DVD og MiniDVD diskum áður en þeir skemmast. Við yfirfærum efnið á stafrænt form sem þú getur spilað í tölvu, síma eða í sjónvarpinu.


Svona fer ferlið fram
- Þú skilar efninu til okkar.
- Við yfirförum og greinum miðlana.
- Upptökurnar á DVD og MiniDVD eru afritaðar af disknum í hámarks gæðum. Hver upptaka er afrituð sem sér skrá.
- Að lokinni yfirfærslu sendum við þér Dropbox hlekk svo þú getir sótt efnið þitt eða afhendum þér á USB-lykli eða hörðum disk. Við getum útvegað USB-lykil eða harðan disk gegn gjaldi.
Afhending og skráarsnið
- Við skilum öllum myndböndum í MP4 (H.264) í upprunalegri upplausn upptökunnar, tilbúin til þess að spila í öllum helstu tækjum. MP4 (H.264) veitir hámarks gæði og sparar geymslupláss. Við bjóðum líka upp á að afhenda upprunalegu skrárnar en oft á tíðum eru þær mun stærri og geta öll tæki ekki endilega spilað þær.
- Þú færð Dropbox hlekk þar sem þú getur sótt allt efnið þitt. Einnig bjóðum við upp á afhendingu á þinn eigin USB-lykil eða harðan disk ef óskað er. Einnig getum við útvegað USB-lykil gegn gjaldi.
Afgreiðslutími
Venjulegur afgreiðslutími er 5–10 virkir dagar frá móttöku miðla. Ef þú þarft gögnin á skemmri tíma, bjóðum við upp á flýtiþjónustu gegn aukagjaldi.
Öryggi og trúnaður
Við förum með allt myndefni sem trúnaðarmál. Miðlarnir eru geymdir í læstu rými og skrárnar eru dulkóðaðar á meðan vinnslu stendur. Öll gögn sem afhent eru er eytt 30 dögum eftir afhendingu nema öðru hafi verið sérstaklega óskað eftir.
Hafðu samband eða notaðu verðreiknivélina til að fá verðhugmynd.